Fotbolti.net
25.01.13 - 19:00
Magnús Már Einarsson

Leroy Lita til Sheffield Wednesday (Staðfest)

Leroy Lita til Sheffield Wednesday (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leroy Lita, framherji Swansea, hefur gengið til liðs við Sheffield Wednesday á láni út tímabilið.

Þessi 28 ára gamli leikmaður byrjaði tímabilið á láni hjá Birmingham og skoraði þrjú mörk í tíu leikjum áður en Swansea kallaði hann til baka.
Síðan þá hefur hann lítið fengið að spreyta sig í liði Swansea og því er hann farinn til Sheffield Wednesday en hann gæti leikið með liðinu gegn Charlton á morgun.

Lita hefur einnig leikið með Bristol City, Reading og Middlesbrough á ferli sínum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.