Fotbolti.net
25.01.13 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson

Moussa Sissoko til Newcastle (Staðfest)

Moussa Sissoko í leik með franska landsliðinu

Moussa Sissoko í leik með franska landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur fest kaup á franska miðvallarleikmanninum Moussa Sissoko, en hann kemur frá Toulouse, sem leikur í efstu deild í Frakklandi.
Sissoko, sem er 23 ára gamall, hefur leikið allan sinn feril hjá Toulouse, en hann lék sinn fyrsta keppnisleik árið 2007. Hann lék þá 218 leiki fyrir Toulouse og skoraði 23 mörk á tíma sínum þar.

Hann hefur þá leikið sex landsleiki fyrir Frakkland, en hann skrifaði í dag undir sex og hálfs árs samning við Newcastle United. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í kvöld, en hann er fimmti franski leikmaðurinn sem kemur til liðsins í janúar.

,,Ég er í skýjunum með að vera leikmaður Newcastle United. Þetta er frábær klúbbur og spilar í bestu deild í heimi. Leikstíll minn hentar ensku úrvalsdeildinni vel og ég get ekki beðið eftir því að spila,\" sagði Sissoko.

Hann mun leika í treyju númer 7 hjá Newcastle.

Heimild: Heimasíða Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.