25.01.14 - 17:27
Gunnar Már Hauksson
Nocerino og Borriello til West Ham (Staðfest)

Antonio Nocerino

Mynd: Getty Images

Antonio Nocerino

Mynd: Getty Images
West Ham og AC Milan hafa komist að samkomulagi um að miðjumaðurinn Antonio Nocerino komi á láni til enska liðsins út tímabilið. Sömuleiðis mun framherjinn Marco Borriello vera á láni hjá West Ham út tímabilið, frá Roma.
Sögusagnir hafa verið á kreik um að leikmennirnir væru á leiðinni til West Ham á láni og hefur félagið nú staðfest að leikmennirnir munu spila með liðinu út tímabilið.
Nocerino hefur leikið 15 leiki fyrir ítalska landsliðið en Borriello sjö. Borriello hefur verið á láni hjá Juventus og Genoa síðustu tvö tímabil.