25.01.14 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Sigurður Hrannar Björnsson í Víking R. (Staðfest)

Sigurður Hrannar Björnsson

Mynd: Heimasíða Fram

Sigurður Hrannar Björnsson

Mynd: Heimasíða Fram
Víkingur R. hefur styrkt sig enn frekar fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild karla en félagið hefur fengið markvörðinn Sigurð Hrannar Björnsson frá Tindastól. Hann gerir þriggja ára samning við félagið.
Sigurður Hrannar, sem er 20 ára gamall fæddist í Hollandi en hann er þó uppalinn í Safamýrinni þar sem hann lék upp alla yngri flokka.
Hann hefur undanfarin ár verið þriðji markvörður Fram í Pepsi-deildinni en fyrir síðustu leiktíð gekk hann þó til liðs við Tindastól í fyrstu deildinni.
Hann lékk fimm leiki með Tindastól síðasta sumar, þar af fjóra í deild og einn í bikar en hann var samningslaus eftir tímabilið.
Sigurður hefur æft með Víkingum undanfarnar vikur og er kominn með félagaskipti en hann krotar undir þriggja ára samning á mánudag. Hann mun þá berjast við Ingvar Kale um markvarðarstöðuna.
Hann á þá að baki einn landsleik með U19 ára landsliði Íslands en það var gegn Svíum á Svíþjóðarmótinu fyrir fjórum árum.