25.01.16 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Adam Örn til Álasund (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norska félagið Álasund hefur fengið U21 árs landsliðsmanninn Adam Örn Arnarson í sínar raðir frá FC Nordsjælland í Danmörku.
Adam kom til Nordsjælland frá hollenska félaginu NEC Nijmegen árið 2014.
Þessi tvítugi hægri bakvörður spilaði alls 17 leiki með Nordsjælland.
Kasper Hjulmand tók við þjálfun Nordsjælland af Ólafi Kristjánssyni á dögunum og hann leyfði Adam að fara í annað félag.

Hjá Álasund hittir Adam þá Aron Elís Þrándarson og Daníel Leó Grétarsson sem eru einnig í U21 árs landsliði Íslands.