25.01.16 - 19:04
Ívan Guðjón Baldursson
El Shaarawy fer til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stephan El Shaarawy, framherji AC Milan, er á leið til AS Roma á láni út tímabilið.
El Shaarawy var fyrri helming tímabilsins á láni hjá Monaco í frönsku deildinni en hefur ekkert verið notaður þar upp á síðkastið vegna þess að ef hann spilar einn leik í viðbót fyrir félagið virkjast kaupákvæði.

„Það er frábært tækifæri að fá að spila með þeim Gulrauðu,\" sagði El Shaarawy við Sky.
„Ég er ánægður, ég vil byrja sem fyrst svo ég geti hjálpað liðinu að ná sem bestum árangri á tímabilinu.
„Það er tilfinningaþrungið að snúa aftur til Ítalíu. Nú þarf ég að standa mig vel til að komast í byrjunarliðið.\"