25.01.16 - 10:32
Magnús Már Einarsson
Mark Magee frá Fjölni til Stratford (Staðfest)

Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mark Magee, framherji Fjölnis, hefur gengið til liðs við Stratford Town í ensku utandeildinni en þar mun hann æfa og spila fram á vor.
Mark kom til Fjölnis frá Tindastóli um mitt sumar 2014 og á síðasta tímabili skoraði hann sex mörk í Pepsi-deildinni. Möguleiki er á að hann leiki áfram með Fjölni í sumar.
„Við munum skoða hans möguleika á að vera með okkur í sumar fyrir æfingaferð okkar í lok mars,\" sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis við Fótbolta.net í dag.
Fjölnismenn eru að skoða möguleika á liðsstyrk þessa dagana.
„Eins og staðan er í dag erum við að leita að styrkingum aftar á vellinum þar sem Bergsveinn (Ólafsson) og (Jonathan) Neftali verða ekki með okkur. Einnig er hægri bakvörðurinn Arnór Eyvar (Ólafsson) nýkominn úr aðgerð á mjöðm en hann verður tilbúinn um miðjan maí.\"