Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. janúar 2020 14:37
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Iheanacho með sigurmarkið
Mynd: Getty Images
Brentford 0 - 1 Leicester
0-1 Kelechi Iheanacho ('4)

Kelechi Iheanacho skoraði strax á fjórðu mínútu er varalið Leicester heimsótti Brentford í fyrsta leik dagsins í enska bikarnum. Nígeríumaðurinn skoraði eftir góðan undirbúning frá James Justin á hægri vængnum.

Bæði lið komust nálægt því að bæta við marki fyrir leikhlé en inn fór boltinn ekki og leikurinn því enn opinn þegar flautað var til síðari hálfleiks.

Seini hálfleikurinn var mjög jafn og einkenndist af mikilli baráttu. Liðin gáfu ekki færi á sér og rataði aðeins eitt skot á rammann á 45 mínútum. Lokatölur 0-1.

Patrik Gunnarsson var varamarkvörður Brentford í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner