Paderborn, liðið sem Samúel Kári Friðjónsson samdi við fyrr í mánuðinum, náði góðum úrslitum í þýsku Bundesliga í dag.
Liðið lagði lið Freiburg að velli á útivelli í dag. Leikar enduðu 0-2 fyrir Paderborn þar sem Christopher Antwi-Adjej og Abdelhamid Sabiri sáu um markaskorunina.
Liðið lagði lið Freiburg að velli á útivelli í dag. Leikar enduðu 0-2 fyrir Paderborn þar sem Christopher Antwi-Adjej og Abdelhamid Sabiri sáu um markaskorunina.
Paderborn hafði verið í botnsætinu frá því í 14. umferð en nú (í 19. umferð) er liðið komið af botninum.
Samúel Kári sat allan tímann á varamannabekknum. Paderborn er tveimur stigum frá Werder Bremen sem situr í umspilssæti um laust sæti í deildinni.
Aðrar fréttir tengdar umferðinni í Bundesliga:
Þýskaland: Haaland kom inn og skoraði tvö
Þýskaland: Bayern valtaði yfir Schalke á heimavelli
Þýskaland: Leipzig tapaði - Alfreð kom við sögu
📊 Live standings:
— Bundesliga English (@Bundesliga_EN) January 25, 2020
15. Mainz (19)
16. Werder (17)
17. 𝙋𝙖𝙙𝙚𝙧𝙗𝙤𝙧𝙣 (15)
18. Düsseldorf (15)
Paderborn are off the bottom for the first time since MD14 📈#SCFSCP 0-1 pic.twitter.com/DilHSuiJWV
Athugasemdir