Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 25. janúar 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fati neitar að fara í enn eina aðgerðina
Mynd: Getty Images
Ansu Fati leikmaður Barcelona hefur verið ansi óheppinn með meiðsli að undanförnu. Hann þurfti að fara meiddur af velli í leik gegn Athletic Bilbao í spænska konungsbikarnum um helgina.

Hann grét þegar hann fór útaf en hann meiddist á læri.

Hann var mikið frá vegna meiðsla á síðasta ári og hann gekkst undir margar að gerðir. Það er talið að hann þurfi að fara í enn eina aðgerðina vegna meiðslanna sem hann hlaut um helgina.

Hann hefur hinsvegar engann áhuga á því. Aðgerðirnar og allt ferlið í kringum það hefur farið ansi illa með andlegu hliðina á honum og hann treystir sér því ekki að gangast undir hnífinn.

Hann vill frekar fara aðrar leiðir . Það gæti þýtt að hann komist fyrr út á völlinn en meiri meiðslahætta.
Athugasemdir
banner
banner
banner