Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. janúar 2022 14:15
Elvar Geir Magnússon
Liverpool ætlar að halda Joe Gomez
Gomez fær faðmlag frá Klopp.
Gomez fær faðmlag frá Klopp.
Mynd: EPA
Liverpool hefur engar áætlanir um að láta enska varnarmanninn Joe Gomez fara frá félaginu.

Real Madrid hefur víst sýnt þessum 24 ára leikmanni áhuga og í slúðurpakkanum í morgun var sagt að Steven Gerrard vildi fá hann til Aston Villa.

En Mandeep Sanghera, íþróttafréttamaður á BBC, segir að Liverpool hafi alls ekki í hyggju að losa Gomez.

Leikmaðurinn missti af stærstum hluta síðasta tímabils eftir að hafa meiðst á hné í landsleik með Englandi í nóvember.

Þrátt fyrir að hann hafi aðeins spilað tólf leiki á yfirstandandi tímabili þá hyggst Liverpool halda honum.
Athugasemdir
banner
banner