Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. janúar 2023 21:08
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: Fram í úrslit eftir markalaust jafntefli gegn Val
Framarar spila til úrslita
Framarar spila til úrslita
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 0 - 0 Valur

Fram er komið í úrslit Reykjavíkurmóts karla eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Val í Úlfarsárdal í kvöld.

Framarar þurftu aðeins stig til að komast í úrslitaleikinn og hafðist það en Valsmenn áttu sextán skot í leiknum og þar af níu á markið.

Valur hefði þurft að vinna Fram með þremur mörkum eða meira til að komast áfram.

Fram vann því riðilinn með 7 stig og er komið í úrslit Reykjavíkurmótsins en það er algjörlega óvíst hvaða lið mætir Fram. Öll liðin í A-riðlinum eru með 3 stig fyrir lokaumferðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner