25.02.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Sammy Ameobi til Middlesbrough (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sammy Ameobi, kantmaður Newcastle, hefur gengið til liðs við nágrannana í Middlesbrough á láni út tímabilið.
Þessi tvítugi leikmaður hefur leikið 14 leiki með Newcastle í vetur en hann hefur ekkert komið við sögu síðan í byrjun janúar.
Þessi tvítugi leikmaður hefur leikið 14 leiki með Newcastle í vetur en hann hefur ekkert komið við sögu síðan í byrjun janúar.
Shola, eldri bróðir Sammy, leikur einnig með Newcastle og Tomi yngri bróðir þeirra hefur leikið á Íslandi undanfarin tvö ár.
Sammy mun nú leika með Middlesbrough út tímabilið en liðið er í sjöunda sæti í Chamionship deildinni og í baráttu um sæti í umspili.
Sammy mun nú leika með Middlesbrough út tímabilið en liðið er í sjöunda sæti í Chamionship deildinni og í baráttu um sæti í umspili.
Heimild: BBC
