Fotbolti.net
25.02.16 - 06:00
Óðinn Svan Óðinsson

Halldór Orri Hjaltason í Völsung (Staðfest)

Halldór leikur með Völsung næsta sumar

Halldór leikur með Völsung næsta sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Halldór Orri Hjaltason hefur gengið til liðs við Völsung frá 1. deildarliði Þórs á Akureyri.

Halldór sem er 23 ára lék 19 leiki fyrir Þór í 1. deildinni í fyrrasumar en hann hefur einnig leikið með Dalvík/Reyni og Völsung.

Halldór er að upplagi miðjumaður en hann getur einnig leikið í stöðu hægri bakvarðar.
Hjá Völsung hittir Halldór fyrir sinn fyrrum þjálfara, Pál Viðar Gíslason en Völsungur leikur í 2. deild í sumar eftir stutt stopp í þeirri þriðju.

Völsungsmenn ætla sér greinilega stóra hluti næsta sumar því fyrr í vetur tryggðu þér sér hinn reynslumikla Olgeir Sigurgeirsson sem kom frá Breiðablik og markvörðinn Steinþór Má Auðunsson en hann kom líkt og Halldór frá Þór.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.