Fotbolti.net
25.02.16 - 16:06
Elvar Geir Magnússon

Króatískur miðvörður kominn í Fram (Staðfest)

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram.

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar hafa fengið til sín 25 ára króatískan varnarmann sem kominn er með leikheimild með liðinu. Hann heitir Mate Paponja.
Paponja er miðvörður sem var síðast hjá NK Imotski og RNK Split í heimalandinu en einnig hefur hann leikið í Bosníu.

Fram hafnaði í níunda sæti 1. deildarinnar í fyrra en gríðarlegar mannabreytingar hafa orðið hjá félaginu undanfarin ár.

Ásmundur Arnarsson tók við sem þjálfari Fram eftir að Pétur Pétursson lét af störfum síðasta haust.

Fram mætir Val í Lengjubikarnum í kvöld en leikurinn hefst klukkan 21:00 í Egilshöll.

Komnir:
Mate Paponja frá Króatíu
Atli Fannar Jónsson frá Víkingi R.
Brynjar Kristmundsson frá Víkingi Ó.
Hafþór Þrastarson frá Fjarðabyggð
Hilmar Þór Hilmarsson frá Val
Hlynur Atli Magnússon frá Noregi
Ingólfur Sigurðsson frá Víkingi Ó.
Sigurður Hrannar Björnsson frá Víkingi R. á láni
Sigurpáll Melberg Pálsson frá Víkingi R.

Farnir:
Alexander Aron Davorsson
Cody Nobles Mizell
Davíð Einarsson í Fylki (Var á láni)
Einar Már Þórisson í KV
Ernir Bjarnason í Breiðablik (Var á láni)
Gunnar Helgi Steindórsson
Magnús Már Lúðvíksson hættur
Ómar Friðriksson í Víking R. (Var á láni)
Sebastien Uchechukwu Ibeagha
Sigurður Gísli Snorrason í FH (Var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.