Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. febrúar 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Antony til Ajax (Staðfest)
Antony kemur til með að leysa Hakim Ziyech af hólmi.
Antony kemur til með að leysa Hakim Ziyech af hólmi.
Mynd: Getty Images
Ajax hefur tilkynnt um kaup á Antony Matheus dos Santos, sem betur er þekktur undir nafninu Antony. Hann kemur frá Sao Paulo í heimalandinu og kemur til með að leysa Hakim Ziyech, sem er að fara til Chelsea í sumar, af hólmi.

Antony var tvítugur í gær. Hann er framherji sem hefur gert fimm mörk í níu leikjum fyrir U20 landslið Brasilíu.

Hann skrifar undir fimm ára samning við Ajax, til 2025, og talið er að kaupverðið geti farið upp í rúmlega 21 milljón evra. Ajax borgar upphaflega rúmlega 15 milljónir evra, en verðið gæti hækkað ef Antony stendur sig vel.

„Með honum erum við að fá skapandi leikmann sem getur spilað allar stöður framarlega á vellinum," segir Marc Overmans, yfirmaður knattspyrnumála hjá Ajax.

Antony mun ganga í raðir Ajax þegar félagaskiptaglugginn opnar næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner