Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 25. febrúar 2020 21:19
Brynjar Ingi Erluson
Kian Williams til Keflavíkur (Staðfest)
Kian Williams er mættur til Keflavíkur
Kian Williams er mættur til Keflavíkur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Knattspyrnudeild Keflavíkur tilkynnti í kvöld komu Kian Williams til félagsins frá Magna en hann gerir tveggja ára samning við félagið.

Williams, sem er fæddur árið 2000, er uppalinn hjá Leicester en hefur spilað með Barwell og Stratford í neðri deildunum á Englandi.

Hann spilaði með Magna í Inkasso-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði 2 mörk í 8 leikjum.

Hann hefur nú gert tveggja ára samning við Keflavík og mun leika með liðinu í 1. deild karla.

Nacho Heras er þá mættur til landsins en hann samdi við Keflavík um miðjan janúar.


Athugasemdir
banner
banner
banner