Fotbolti.net
25.02.20 - 20:38
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Aron skoraði tvö og lagði upp eitt í sænska bikarnum

Aron Jóhannsson komst á blað í gær

Aron Jóhannsson komst á blað í gær

Canon

Mynd: Hammarby

Hammarby fagnaði 5-1 sigri á Varberg í sænska bikarnum í gær en Aron Jóhannsson skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í sigri sænska stórliðsins.
Aron gekk til liðs við Hammarby frá Werder Bremen á síðasta ári og spilaði tíu leiki en honum tókst ekki að skora á síðasta tímabili.

Hann byrjar þetta tímabil af krafti en hann skoraði tvö og lagði upp eitt í 5-1 sigri á Varberg í bikarnum í gær.

Hann gerði fyrsta markið með skoti af stuttu færi áður en hann átti góða sendingu í þriðja marki liðsins. Hann skoraði svo fjórða markið eftir slæm mistök hjá markverði Varberg.

Hægt er að sjá mörkin hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.