Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 25. febrúar 2021 10:31
Magnús Már Einarsson
Mourinho fagnar endurkomu Alli
Dele Alli skoraði glæsilegt mark með hjólhestaspyrnu í öruggum 4-0 sigri Tottenham á Wolfsberger í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Alli hefur verið úti í kuldanum hjá Jose Mourinho á þessu tímabili en stjórinn hrósaði leikmanninum eftir leikinn í gærkvöldi.

„Ég þarf ekki að ræða markið því að allir sáu það. Fólk út um allan heim horfir á íþróttir í sjónvarpinu og sér þetta svo það er engin þörf á að tala um það," sagði Mourinho.

„Fyrir mig var það frammistaðan heilt yfir sem skiptir máli. Hann spilaði mjög vel allan leikinn í öllum þáttum leiksins."

„Auðvitað er hann ekki ferskur og auðvitað fer frammistaða hans niður á við eftir 55-60 mínútur. Það er eðlilegt því hann hefur verið meiddur og ekki æft lengi. Við erum að fara að spila á þriggja daga fresti og eigum tíu leiki í mars svo það er ótrúlega gott að fá Dele til baka."

Athugasemdir
banner
banner