Fotbolti.net
25.02.22 - 09:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gummi Tóta til AaB (Staðfest) - Getur framlengt samninginn

Gummi Tóta til AaB (Staðfest) - Getur framlengt samninginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Þórarinsson er genginn í raðir AaB í Danmörku. Landsliðsmaðurinn skrifar undir samning fram á sumarið með möguleika á framlengingu.

Guðmundur er 29 ára gamall og hefur leikið með New York City í MLS-deildinni undanfarin tvö tímabil. Hann varð meistari með liðinu á liðinni leiktíð.
Hann hefur áður leikið í Danmörku, lék með Nordsjælland tímabilið 2015-16. Þá hefur hann spilað í Noregi, með Sarpsborg og Rosenborg, og í Svíþjóð með Norrköping.

Gummi hefur spilað tólf A-landsleiki og getur leist stöður vinstra megin á vellinum sem og á miðsvæðinu.

„Ég er stoltur og glaður að hafa náð samkomulagi við AaB. Félagið hefur átt gott tímabil til þessa og ég er spenntur fyrir því að hjálpa liðinu í því að ná í eins góð úrslit og hægt er."

„AaB er mjög fínt félag og getustigið í Superliga er gott. Ég hef áður spilað í Álaborg með U21 árs landsliðinu og hef núna verið í borginni í 2-3 daga. Ég er ánægður að vera hér og spenntur fyrir framhaldinu,"
sagði Gummi.

Hann er uppalinn á Selfossi og lék einnig með ÍBV áður en hann fór erlendis í atvinnumennsku. Hann hefur fengið treyju númer 36 hjá AaB.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.