Fotbolti.net
25.02.22 - 09:52
Elvar Geir Magnússon

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar færður til Parísar (Staðfest)

Leikið verður á Stade de France.

Leikið verður á Stade de France.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar 2022 verður spilaður í París, höfuðborg Frakklands en þetta var ákveðið á neyðarfundi evrópska fótboltasambandsins.

Leikurinn var tekinn af Rússum eftir að her Vladímír Pútín réðist inn í Úkraínu. Það átti upphaflega að spila í Pétursborg, á Gazprom vellinum.
UEFA hefur nú ákveðið að leikið verði á Stade de France, þjóðarleikvangi Frakka. Leikurinn verður 28. maí.

Um þessar mundir eru 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í fullum gangi.

Í yfirlýsingu sem UEFA sendi frá sér í gær kom fram að sambandið fordæmir innrás Rússa í Úkraínu og að það stendur með fótboltasamfélaginu í Úkraínu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.