Fotbolti.net
25.03.13 - 19:30
Elvar Geir Magnússon

Phil Brown tekinn við Southend (Staðfest)

Phil Brown tekinn við Southend (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Southend hefur staðfest að Phil Brown sé nýr knattspyrnustjóri liðsins en í gær var tilkynnt að Paul Sturrock hefði látið af störfum.

Southend er í níunda sæti ensku D-deildarinnar, sex stigum frá sjötta sætinu sem er umspilssæti.
Brown er fyrrum stjóri Derby, Hull og Preston.

„Ég er í skýjunum með að hafa fengið þetta tækifæri og hlakka til að takast á við þetta verkefni. Það eru sjö deildarleikir og vonandi munum við eiga möguleika á að ná umspilssæti,\" segir Brown.

Brown stýrði Hull í ensku úrvalsdeildina 2008 en hefur verið atvinnulaus síðan 2011 þegar hann féll með Preston.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.