25.03.22 - 12:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ástrali og Aron Fannar í Þrótt (Staðfest)

Alex og Aron

Mynd: Þróttur R.

Alex og Aron

Mynd: Þróttur R.
Þróttarar hafa fengið til liðs við sig tvo leikmenn fyrir átökin í 2. deild í sumar.
Alex Baker (2001) kemur til Þróttar frá Ástralíu þar sem hann hefur leikið í neðri deildum undanfarin ár, aðallega í NPL 3. Alex er metnaðarfullur leikmaður sem kom upphaflega til Íslands á eigin vegum til að freista gæfunnar. Hann er kröftugur og traustur varnarmaður sem á eftir að styrkja varnarleik Þróttara í sumar,
Aron Fannar Hreinsso (2002) kemur að láni frá Fjölni út tímabilið.
Aron er hefur leikið með yngri flokkum Fjölnis og einnig með venslaliðinu Vængjum Júpiters. Hann er bæði eldfljótur og áræðinn og mun auka breidd og samkeppni um stöður í sóknarleik Þróttar. Aron skoraði 9 mörk í 13 leikjum fyrir Vængi Júpiters á síðasta ári og 9 mörk í 18 leikjum fyrir A-lið 2.fl. Fjölnis sem lenti í 2. sæti á Íslandsmótinu.
Þeir félagar eru hér saman á myndinni eftir sinn fyrsta opinbera leik með Þrótti gegn Augnabliki sem vannst 6 - 0.
Alex er til vinstri, Aron hægra megin.