25.03.22 - 11:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Axel til Örebro (Staðfest)

Mynd: Örebro

Mynd: Örebro
Axel Óskar Andrésson er genginn í raðir Örebro og skrifar undir þriggja ára samning við sænska félagið.
Axel kemur frá Riga á frjálsri sölu eftir eitt tímabil í Lettlandi.

Hann glímdi við meiðsli stærstan hluta síðasta árs en er orðinn heill heilsu og til í slaginn í sænsku B-deildinni.
Axel er 24 ára miðvörður sem uppalinn er hjá Aftureldingu en fór til Reading 16 ára gamall. Hann lék með Viking í Noregi tímabilin 2019-20. Í fyrr byrjaði hann vel með Riga en meiðsli héldu honum frá vellinum.
Viðtal við Axel verður birt innan skamms hér á fótbolti.net.