Fotbolti.net
25.03.22 - 12:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Haukur Heiðar hættur (Staðfest) - „Hef í raun verið meiddur í fimm ár"

Haukur Heiðar hættur (Staðfest) - „Hef í raun verið meiddur í fimm ár"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Heiðar Hauksson hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu greindi hann á Instagram reikningi sínum í gær.

„Eftir að hafa barið hausnum við vegg í 5 ár hef ég ákveðið að segja þetta gott. 4 titlar og 1 EM. Takk fyrir mig!💛💙," skrifaði Haukur í færslunni sem má sjá hér að neðan.
Haukur er þtrítugur og lék lengst af á sínum ferli sem hægri bakvörður. Hann lék með uppeldisfélagi sínu KA, KR og AIK á sínum ferli.

Eins og hann segir í færslunni vann hann fjóra titla og var hluti af EM hópi íslenska landsliðsins árið 2016. Hann vann meistarakeppni KSÍ árið 2012 með KR og varð bikarmeistari um haustið. Haukur varð Íslandsmeistari með KR árið 2013, aftur vann hann meistarakeppni KSÍ 2014 og sama ár varð hann bikarmeistari. Í kjölfarið fór hann til Svíþjóðar og varð sænskur meistari árið 2018.

Síðustu ár hefur hann glímt við meiðsli og samanlagt einungis spilað 20 deildarleiki síðustu þrjú tímabil hjá KA.

Ferill Hauks í meistaraflokki: 2008-11 KA, 2012-14 KR, 2015-2018 AIK og 2019-2021 KA.

„Ég er hættur þessu, ég er búinn að segja þetta gott. Þetta smá högg sem ég fékk úti á Spáni hafði ekkert endilega mikið með það að gera að ég kalla þetta gott. Ég er orðinn fínn núna en hef í raun verið meiddur í fimm ár og ákvörðunin hefur verið svolítið lengi á leiðinni," sagði Haukur við Fótbolta.net.

Sérðu eftir þessu harki í gegnum meiðsli síðustu ár?

„Nei, ég sé ekki beint eftir því en maður man samt best eftir því sem er manni næst. Það eru eintóm meiðsli undanfarin fimm ár og maður man kannski helst eftir því. Ég ætla samt ekki að segja að ég sjái eftir því."

Ætlaru að slíta þig alveg frá fótbolta?

„Ég er aðeins að melta það en reikna með því að ég verði í smá pásu. KA-menn munu sjá mig í stúkunni í sumar," sagði Haukur að lokum

Haukur Heiðar hættur (Staðfest) - „Hef í raun verið meiddur í fimm ár"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.