Jónatan Ingi í Sogndal (Staðfest)

Jónatan Ingi er farinn frá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Ingi er farinn frá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn Jónatan Ingi Jónsson hefur verið seldur frá FH til Sogndal í Noregi og samdi til þriggja ára við norska félagið.
Jónatan Ingi er 23 ára gamall og þetta er í annað sinn sem FH selur hann því hann fór til AZ Alkmaar í Hollandi árið 2015, þá 16 ára.
Hann sneri aftur til FH árið 2018 og hóf þá sinn meistaraflokksferil. Hann hefur síðan þá spilað 73 leiki í efstu deild hér og skorað í þeim 13 mörk.
Hann er annar leikmaðurinn sem Sogndal fær frá FH í vetur því áður hafði bakvörðurinn Hörður Ingi Gunnarsson komið. Fyrir er hjá félaginu Fylkismaðurinn Valdimar Þór Ingimundarson. Emil Pálsson lék með liðinu á láni frá Sarpsborg á seinni hluta síðasta tímabils.
Sogndal endaði í 6. sæti í næst efstu deild Noregs á síðustu leiktíð. Tore Andre Flo fyrrverandi leikmaður Chelsea þjálfar liðið.
FH og Sogndal hafa komist að samkomulagi um að síðarnefnda félagið kaupi kantmanninn knáa Jónatan Inga Jónsson . Jóntan Ingi er uppalinn FH-ingur og var valinn leikmaður ársins hjá FH í fyrra.Takk í bili Jónatan og gangi þér vel!https://t.co/3Cw5mpq5R5 pic.twitter.com/C90M3cBYR1
— FHingar (@fhingar) March 25, 2022
