Fotbolti.net
25.04.14 - 19:15
Ívan Guðjón Baldursson

Reebok Stadium verður að Macron Stadium í júlí (Staðfest)

Reebok leikvangurinn hefur hýst marga skemmtilega leiki síðustu sautján ár

Reebok leikvangurinn hefur hýst marga skemmtilega leiki síðustu sautján ár

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Reebok Stadium hefur verið heimavöllur Bolton Wanderers frá opnun árið 1997 en nú hefur félagið selt nafn leikvangsins til fataframleiðanda.

Leikvangurinn mun breyta um nafn í júlí og verður þá Macron Stadium. Macron framleiðir íþróttafatnað og gerði fjögurra ára samning við Bolton.
,,Við hrífumst að ástríðu fyrirtækisins þegar það kemur að knattspyrnu og okkur líka hugmyndir sem hafa komið um samstarf okkar,\" sagði Phil Gartside, forseti félagsins, við vefsíðu Bolton.

Rúmlega 28 þúsund manns komast fyrir á leikvanginum sem var byggður þegar félagið færði sig frá Burnden Park.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.