Oliver Stefánsson átti stórleik sem djúpur miðjumaður hjá ÍA í sigrinum gegn Íslands- og bikarmeisturum Víkings í gær.
Hann var valinn maður leiksins af fréttaritara Fótbolta.net á vellinum. „Oliver var stórkostlegur á miðjunni í dag, lokandi öllum svæðum fyrir framan vörn Skagamanna og tæklandi allt sem þurfti að tækla, auk þess að stýra samherjum sínum gríðarlega vel og sýnandi frábæran karakter," skrifaði Baldvin Már Borgarsson í skýrslu sinni.

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, hrósaði jafnframt leikmanninum unga í viðtali eftir leik.
„Hann er með risastórt Skagahjarta, fyrst og fremst," sagði Jón Þór um hinn 19 ára gamla Oliver.
„Fyrir 19 ára stráka hvernig hann stýrir og stjórnar liðinu... og hann er með mikla nærveru inn á miðjunni. Þegar ég kem hingað á undirbúningstímabilinu þá förum við að leita að varnarsinnuðum miðjumanni, en við föttum það fljótlega að ef við næðum Oliver í gang að þá væri hann leikmaðurinn sem við værum að leita að."
„Oliver var algjörlega stórkostlegur í dag og átti stórkostlegan fyrri hálfleik á Samsungvellinum í fyrstu umferð. Hann er frábær leikmaður og karakterinn sem hann hefur... í síðustu viku spilaði hann sinn fyrsta keppnisleik í þrjú ár. Og svo kemur hann með þessa frammistöðu hérna og það lýsir frábærum dreng," sagði Jón Þór.
Sjá einnig:
Fyrsti keppnisleikur Olivers í þrjú ár -„Ólst upp við mikla leiðtoga"