Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
laugardagur 27. apríl
Besta-deild kvenna
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
fimmtudagur 28. september
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 25. apríl
Úrvalsdeildin
Brighton 0 - 4 Man City
Serie A
Udinese 1 - 2 Roma
Úrvalsdeildin
CSKA 0 - 0 Spartak
Akhmat Groznyi 1 - 0 Sochi
Fakel 0 - 1 Kr. Sovetov
Ural 0 - 1 Rostov
þri 25.apr 2023 16:00 Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 12. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Ægir, 27 stig

12. Ægir
Þetta hefur verið frekar skrautlegur vetur fyrir Ægismenn þar sem upphaflega planið hjá þeim var að spila í 2. deild og reyna að komast upp úr henni. En svo breyttist staðan þegar í ljós kom að Kórdrengir myndu ekki taka þátt á Íslandsmótinu. Ægismenn voru sendir upp um deild og þurftu allt í einu að undirbúa sig fyrir mun sterkari deild. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim tekst upp en þeir eru langneðstir í þessari spá.



Þjálfarinn: Nenad Zivanovic tók við þjálfun Ægis fyrir 2019 þegar liðið var í 4. deild. Undir hans stjórn hefur liðið klifrað upp deildirnar og er í sumar að fara að spila í næst efstu deild. Nenad var öflugur leikmaður á sínum tíma og spilaði með Breiðabliki í efstu deild. Hann er með efnilegan aðstoðarmann með sér, Baldvin Má Borgarsson, og hafa þeir myndað sterkt teymi.


Nenad og Baldvin.

Styrkleikar: Ægismenn eru með nokkuð stóran og samheldinn hóp. Það er frekar mikil breidd og samkeppni í liðinu. Þeir eru sterkir í föstum leikatriðum og það gæti komið sér vel í Lengjudeildinni í sumar. Margir leikmenn hafa verið lengi hjá liðinu og farið með liðinu upp úr neðstu deild, líkt og þjálfararnir. Þeir eru með heilt bæjarfélag á bak við sig og það hefur sést í körfuboltanum hversu góð stemning getur myndast í Þorlákshöfn. Ef Ægismönnum tekst að fá fólk á völlinn og það verður góð stemning út frá því þá gæti það hjálpað liðinu að halda sér uppi.



Veikleikar: Þeir eru með mjög reynslulítið lið á þessu stigi leiksins, fáir leikmenn með leiki á bakinu í Lengjudeild. Liðið var að undirbúa sig fyrir 2. deild snemma á þessu ári og hefur ekki fengið mikinn tíma til að undirbúa sig fyrir styrkinn sem býr í Lengjudeildinni. Úrslitin á undirbúningstímabilinu hafa ekki verið góð og það er í raun spurning hvort menn séu einfaldlega nægilega góðir til að leika í þessari deild.

Lykilmenn: Dimitrije Cokic er frábær miðjumaður sem var gríðarlega sterkur fyrir lið Ægis í 2. deild í fyrra. Hann skoraði þá tíu mörk í 21 leik. Hrvoje Tokic er einn af fáum leikmönnum í liðinu sem er með reynslu úr þessari deild og hann hefur sannað það að hann getur skorað mikið af mörkum í Lengjudeildinni. Ef hann mætir með rétt hugarfar í deildina þá getur hann skorað helling af mörkum. Stefan Dabetic er svo hjartað í liðinu en hann er virkilega öflugur miðvörður sem ætti að geta tekið þetta stökk upp um deild frekar léttilega; miðvörður með mikil gæði.


Stefan Dabetic er mjög öflugur varnarmaður.

Fylgist með: Cristofer Moises Rolin
Vakti mikla athygli í Mjólkurbikarnum gegn FH á dögunum. Hann er með alvöru skrokk og gerir margt vel, tekur mikið til sín. Það sem hann þarf mest að laga hins vegar er að hann þarf að geta klárað færin sem hann fær. Hann tók eitt færi mjög vel á móti FH og þarf að gera meira af því. Ef hann gerir það þá gæti hann spilað á hærra stigi.


Cristofer Rolin.

Komnir
Anton Fannar Kjartansson frá Breiðabliki
Atli Rafn Guðbjartsson frá Selfossi
Baldvin Þór Berndsen frá Fjölni (á láni)
Bele Alomerovic frá Val
Benedikt Darri Gunnarsson frá Val
Daníel Smári Sigurðsson frá Fjölni (á láni)
Emil Ásgeir Emilsson frá Víkingi R.
Hrvoje Tokic frá Selfossi
Ivo Braz frá Litháen
Jóhannes Karl Bárðarson frá Víkingi (á láni)
Kristófer Jacobson Reyes frá Kórdrengjum
Marko Panic frá HK
Sladjan Mijatovic frá Serbíu
Stefán Þór Hannesson frá Fram (á láni)
Torfi Már Markússon frá Létti
Þorgeir Ingvarsson frá Magna


Tokic kom frá Selfossi.

Farnir
Arilíus Óskarsson í Stokkseyri
Arnar Páll Matthíasson í Árbæ (á láni)
Ágúst Karel Magnússon í Þrótt R.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í ÍH
Djordje Panic til Serbíu
Milos Djordjevic til Serbíu
Stefán Blær Jóhannsson í Árborg (á láni)
Þorkell Þráinsson í Stokkseyri

Líklegt byrjunarlið


Fyrstu þrír leikir Ægis:
5. maí, Ægir - Fjölnir (Þorlákshafnarvöllur)
11. maí, Njarðvík - Ægir (Rafholtsvöllurinn)
21. maí, Þróttur R. - Ægir (AVIS völlurinn)

Sjá einnig:
Ægismenn fá allt aðra áskorun - Upp um deild í febrúar
Athugasemdir
banner
banner