„Úrslitin eru ekki allt, en ég er ekki sáttur með hvernig við töpuðum leiknum, við vorum klaufalegir í varnarleik og smá orkuleysi í liðinu sem kom mér verulega á óvart. Það vantaði hugrekki í að þora að spila sem kom mér líka verulega á óvart. Það vantaði upp á ákvörðunatöku og það var gæðaleysi inn á milli. Ég er að einhverju leyti mjög svekktur," segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, eftir tap gegn Þrótti í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 0 Njarðvík
„Við vissum hvernig leik við værum að fara inn í og hvernig leik Þróttararnir myndu spila, sáum þá á móti ÍBV. Mér fannnst við gera þokkalega í að ráða við seinni boltana þegar þeir negldu honum upp í von og ótta."
„En við náðum ekki að skapa okkur nægilega mikið, kom aðeins í lokin, eðlilega þegar Þróttararnir liggja aðeins til baka. Við fengum líka frábært færi í fyrri hálfleik til þess að stimpla okkur almennilega inn í þetta einvígi."
„Þetta er enginn heimsendir, við spiluðum á móti liði sem er vel rútínerað, lítið af breytingum á hópnum og sami þjálfari í nokkur ár. Við erum ennþá í þeim fasa sem við sýndum í dag, erum greinilega ekki komnir lengra. Við höfum átt mjög gott undirbúningstímabil, verið gott jafnvægi í liðinu. En við náðum alls ekki að sýna það jafnvægi í dag, því miður," segir Davíð.
Valdimar Jóhannsson fór meiddur af velli, fann til aftan í læri. En af hverju kom Guðmundur Magnússon ekki fyrr inn á?
„Hann kemur mjög seint til okkar og er ekki kominn á fulla sverð, við eigum eftir að sjá miklu meira af Gumma. Hann er að einhverju leyti aðeins á eftir okkur, kom seint inn í þetta."
„Það er bara næsti leikur og næsta móment. Njarðvík var á algjöru draumatímabili í fyrra, töpuðu ekki leik fyrr en í lokin. Núna snúum við þessu við, byrjum á tapi í dag og höldum áfram og verðum sterkir að lokum," segir Davíð Smári að lokum.



