KR hafði betur gegn Víkingi R. í Pepsi Max-deild karla fyrr í kvöld. Óskar Örn Hauksson gerði sigurmarkið snemma leiks.
Björgvin Stefánsson hefur verið mikið í umræðunni vegna ummæla sem hann lét falla í beinni útsendingu og var hann í byrjunarliði KR í kvöld.
Björgvin gæti átt yfir höfði sér fimm leikja bann og vildu fréttamenn fá hann í viðtal eftir sigurinn.
Hann fékk hins vegar ekki að koma í viðtal að leikslokum. Viðtal við Rúnar Kristinsson, þjálfara KR, er í vinnslu.
Athugasemdir