Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro er allt í öllu í sóknarleik Manchester United gegn Chelsea á Old Trafford en staðan er 2-0, heimamönnum í vil.
Casemiro skoraði með skalla á 6. mínútu og átti þá stóran þátt í öðru markinu sem kom undir lok hálfleiksins.
Miðjumaðurinn knái lyfti boltanum yfir varnarmenn Chelsea og til Jadon Sancho, sem lagði boltann á fjærstöngina á Anthony Martial sem potaði honum í netið.
Man Utd er örugglega á leið í Meistaradeildina. Chelsea þarf að skora þrjú mörk til að fresta fögnuðinum og miðað við tímabilið sem Chelsea er að eiga þarft kraftaverk til að liðið skori þrjú mörk í einum og sama leiknum.
Sjáðu markið og sendinguna hjá Casemiro
Athugasemdir