Fotbolti.net
25.05.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Fyrsta sinn síðan 1991 sem Milan og Juve missa af Meistaradeild

Fyrsta sinn síðan 1991 sem Milan og Juve missa af Meistaradeild
Canon

Mynd: EPA

AC Milan og Juventus munu ekki leika í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir að hafa haltrað á lokametrum ítalska deildartímabilsins.
Milan tapaði sex af tíu síðustu leikjum sínum, meðal annars á heimavelli gegn Cagliari í lokaumferðinni, á meðan Juve tapaði fyrir Fiorentina og gerði jafntefli við Verona í mikilvægum leikjum í maí.

Stórveldin munu bæði leika í deildarkeppni Evrópudeildarinnar en það er afar sjaldgæf sjón að sjá hvorki Milan né Juventus fara í æðstu félagsliðakeppni Evrópu.

Það hefur ekki gerst síðan árið 1991, þegar Sampdoria vann sögulegan Ítalíumestaratitil. Milan endaði í öðru sæti deildarinnar það árið en mátti ekki taka þátt í Evrópukeppni útaf banni frá evrópska fótboltasambandinu, UEFA, eftir frægt atvik í Marseille.

Milan var að keppa við Marseille í 8-liða úrslitum gömlu Meistaradeildarinnar. Milan var ríkjandi meistari og var 2-1 undir samanlagt þegar seinni leikurinn var kominn í uppbótartíma í Frakklandi. Þegar tvær mínútur voru eftir af uppbótartímanum slokknaði á flóðljósunum svo sænski dómari leiksins neyddist til að stöðva leikinn á meðan tæknimenn leystu vandann.

Stundarfjórðungi síðar var flóðljósavandamálið leyst og ætlaði Bo Karlsson að hefja leikinn á ný þegar Adriano Galliani, þáverandi framkvæmdastjóri Milan, þrammaði inn á völlinn og dró leikmenn liðsins útaf.

Milan neitaði að klára síðustu tvær mínúturnar útaf ólögmætri truflun þar sem hann sakaði sjónvarpsmenn meðal annars um að eyðileggja grasið á vellinum á meðan flóðljósin voru slökkt.

UEFA tók ekki vel í þetta uppátæki Galliani og AC Milan og dæmdi liðið í eins árs bann frá Evrópukeppnum. Galliani var dæmdur í tveggja ára bann frá öllu UEFA-tengdu.

Á sama tíma endaði Juventus í sjöunda sæti í Serie A og missti þannig af Meistaradeildinni.

Ítalía: Como í Meistaradeildina - Cagliari skemmdi fyrir Milan
TENGT EFNI

Ítalía: Como í Meistaradeildina - Cagliari skemmdi fyrir Milan

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Fyrsta sinn síðan 1991 sem Milan og Juve missa af Meistaradeild
Canon

Mynd: EPA

Fyrsta sinn síðan 1991 sem Milan og Juve missa af Meistaradeild
Canon

Mynd: Juventus

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Lecce000
1Juventus2+56
2Bologna000
2Inter2+56
3Frosinone000
3Bologna2+14
4Genoa000
4Milan1+33
5Napoli1+23
5Napoli000
6Udinese000
6Chievo1+13
7Monza000
7Sampdoria1+13
8Roma2-13
8Sassuolo000
9Torino101
9Venezia000
10Lazio101
10Roma000
11Inter000
11Sassuolo101
12Juventus000
12Spal101
13Fiorentina000
13Genoa2-21
14Udinese1-10
14Milan000
15Atalanta1-10
15Atalanta000
16Benevento2-20
16Lazio000
17Cagliari000
17Verona1-20
18Torino000
18Cagliari1-30
18Cremonese38-2534
19Crotone1-30
19Parma000
19Verona38-3621
20Pisa38-4518
20Fiorentina1-30
20Como000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.