25.06.13 - 10:28
Magnús Már Einarsson
Ancelotti tekinn við Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti hefur verið ráðinn þjálfari Real Madrid en spænska félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.
Ancelotti stýrði PSG til sigurs í frönsku deildinni á síðasta tímabili en hann var þá á sínu öðru tímabili.

Ancelotti tekur við Real Madrid af Jose Mourinho sem hætti á dögunum og tók við sínu gamla félagi Chelsea.
Undanfarnar vikur hefur Ancelotti verið orðaður við þjálfarastarfið hjá Real og hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Hinn 54 ára gamli Ancelotti hefur einnig stýrt Reggiana, Parma, Juventus, AC Milan og Chelsea á ferli sínum.