25.06.14 - 10:24
Magnús Már Einarsson
Claudio Bravo til Barcelona (Staðfest)

Claudio Bravo.

Mynd: Getty Images

Claudio Bravo.

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur keypt markvörðinn Claudio Bravo í sínar raðir frá Real Sociedad.
Bravo er annar markvörðurinn sem Barcelona fær í sínar raðir í sumar á eftir Marc-Andre ter Stegen sem kom frá Gladbach í Þýskalandi.
Victor Valdes er á förum frá Barcelona eftir að hafa varið mark liðsins undanfarin ár og þeir Bravo og Ter Stegen eiga að berjast um markvarðarstöðuna.

Bravo er landsliðsmarkvörður Síle en hann hefur staðið sig vel á HM í Brasilíu.
Bravo hefur verið fyrirliði Síle síðan árið 2008 en hann hefur varið mark Real Sociedad síðan árið 2006.