Fotbolti.net
25.06.14 - 17:30
Daníel Freyr Jónsson

Ezequiel Garay til Zenit St. Petersburg (Staðfest)

Ezequiel Garay.

Ezequiel Garay.

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska félagið Zenit St. Petersburg hefur gengið frá kaupum á argentínska varnarmanninum Ezequiel Garay frá Benfica.
Kaupverðið er talið nema 15 milljónum evra og skrifaði Garay undir fimm ára samning hjá Zenit.

Garay er 27 ára gamall miðvörður og er hann þessa stundina staddur í Brasilíu með argentínska landsliðinu á HM.

Hann lék með Benfica í þrjú ár eftir að hafa verið keyptur frá Real Madrid árið 2011. Undanfarna mánuði hefur hann hinsvegar verið orðaður við brottför frá Benfica og var hann meðal annars sagður vera undir skotmark Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.