25.06.14 - 19:13
Brynjar Ingi Erluson
Fernando til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City hefur fest kaup á brasilíska miðjumanninum Fernando frá FC Porto fyrir 15 milljónir evra en portúgalska félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.
Fernando, sem er 26 ára gamall, hefur spilað lengst af á sínum ferli hjá Porto en hann hefur verið lykilmaður í liðinu síðustu ár.
Þessi brasilíski miðjumaður hefur verið orðaður við stærstu félög Evrópu undanfarin tvö ár en Porto framlengdi samning hans til 2019 í febrúar á þessu ári.
Manchester City hefur verið í viðræðum við Porto undanfarnar vikur en portúgalska félagið staðfesti í dag að það væri búið að festa kaup á leikmanninum fyrir 15 milljónir evra.
Fernando á ekki A-landsleik að baki með Brasilíu en hann hefur spilað fyrir U20 ára landslið Brasilíu.
Hann er annar leikmaðurinn sem Man City fær til sín í sumar en Bacary Sagna kom á frjálsri sölu á dögunum frá Arsenal.