banner
   þri 25. júní 2019 22:07
Arnar Helgi Magnússon
Davíð Þór úr Fylki í Kórdrengi (Staðfest)
Davíð í leik með Fylki árið 2018.
Davíð í leik með Fylki árið 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Kórdrengir hafa fengið mikinn liðsstyrk en Davíð Þór Ásbjörnsson mun ganga til liðs við félagið þegar félagsskiptaglugginn opnar þann 1. júlí.

Davíð Þór kemur til liðsins frá Fylki en hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum Pepsi Max-deildar liðsins á tímabilinu.

Kórdrengir sitja í 3. sætinu í 3. deild en það er alveg á hreinu að liðið ætlar sér ekkert annað en upp um deild.

Fréttatilkynning Kórdrengja
Nú er rétt tæp vika í að glugginn opnar eða 1. júlí og hafa Kórdrengir fengið gríðarlegan liðsstyrk, Davíð Þór Ásbjörnsson.

Davíð Þór er fæddur 1992 og kemur til okkar frá sínu uppeldisfélagi Fylki. Davíð á að baki um 111 leiki í meistaraflokki, 79 í efstu deild, 16 í Inkasso og 16 í bikar.Hann hefur einnig spilað bæði með U17 og U19 landsliðum Íslands.

Davíð Þór er sterkur og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og verður hann gjaldgengur með okkur frá og með 1. júlí.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner