Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 25. júní 2019 19:56
Arnar Helgi Magnússon
Everton gengur frá kaupunum á Andre Gomes (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Everton hefur fest kaup á portúgalska miðjumanninum Andre Gomes sem að spilaði með liðinu á leiktíðinni en þá á láni frá Barcelona.

Everton borgar Barcelona 22 milljónir fyrir leikmanninn sem gerir fimm ára samning við félagið.

„Ákvörðunin var mjög auðveld og ég gæti ekki verið sáttari við þessa niðurstöðu. Ég er mjög ánægður hjá félaginu," sagði Gomes við undirskriftina.

Portúgalinn lék 29 leiki á tímabilinu en hann kom til liðsins á gluggadeginum í ágúst í fyrra.

„Síðan ég kom til liðsins hefur mér fundist ég vera hluti af fjölskyldu og það tel ég vera mikilvægt og mjög jákvætt," sagði Gomes að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner