Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 25. júní 2019 12:00
Arnar Daði Arnarsson
Lyon fær til sín brasilískan miðjumann (Staðfest)
Jean Lucas
Jean Lucas
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lyon hefur fengið til sín brasilíska miðjumanninn, Jean Lucas frá Flamengo. Þetta tilkynnti félagið á Twitter síðu sinni nú rétt í þessu.

Jean Lucas sem er varnarsinnaður miðjumaður hefur leikið með Flamengo og Santos í heimalandi sínu fagnaði 21 árs afmæli sínu á laugardaginn.

Lyon endaði í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar í fyrra 19 stigum á eftir PSG sem urðu franskir meistarar. Lyon endaði þremur stigum á eftir Lille sem endaði í 2. sæti deildarinnar.

Lucas lék 20 leiki með Santos á síðustu leiktíð þar sem hann var á láni frá Flamengo. Hann á 25 leiki að baki með Flamengo í Brasilíu.




Athugasemdir
banner
banner