25.06.19 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Quincy Promes til Ajax (Staðfest)

Quincy Promes í leik með hollenska landsliðinu

Mynd: Getty Images

Hollenska meistaraliðið Ajax gekk í gær frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Quincy Promes en hann kemur frá Sevilla á Spáni.
Ajax kom verulega á óvart í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð en liðið fór alla leið í undanúrslit og datt út gegn Tottenham. Enska liðið kom sér í úrslitaleikinn með marki á síðustu sekúndu leiksins.
Hollenska liðið spilaði frábæran fótbolta og er með marga gæðaleikmenn innaborðs. Liðið er búið að missa Frenkie de Jong og gætu fleiri verið á útleið en félagið styrkti sig þó í gær.
Hollenski landsliðsmaðurinn Quincy Promes er kominn til Ajax frá Sevilla en félagið borgar 14 milljónir pudna fyrir leikmanninn.
Þetta er gríðarleg styrking fyrir Ajax sem ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili.
Hann á að baki 37 landsleiki og 7 mörk fyrir Hollands sem er á mikilli uppleið.