Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. júní 2020 10:30
Hafliði Breiðfjörð
Magni fær enskan framherja (Staðfest)
Úr leik Magna og HK í Mjólkurbikarnum í gær.
Úr leik Magna og HK í Mjólkurbikarnum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magni hefur fengið enska framherjann Costelus Lautaru til liðs við sig fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar.

Costelus er tvítugur á þessu ári en hann hefur spilað með yngri liðum Coventry á ferli sínum.

Fyrir hjá Magna eru enski miðjumaðurinn Louis Wardle, sem spilaði með liðinu í fyrra, og kantmaðurinn Kairo Edwards-John.

Magni tapaði 2-0 gegn ÍBV í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar en liðið mætir Fram á heimavelli á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner