Fotbolti.net
25.06.22 - 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Felix Örn gerir tveggja ára samning við ÍBV (Staðfest)

Felix Örn gerir tveggja ára samning við ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Felix Örn Friðriksson hefur gert nýjan samning við ÍBV. Hann gildir út sumarið 2024.

Þessi 23 ára gamli varnarmaður er uppalinn í Eyjum en hann lék sína fyrstu leiki fyrir félagið sumarið 2016. Hann hefur verið lykilmaður í lið Eyjamanna síðustu fjögur tímabil.

Hann hefur leikið 169 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim sex mörk. Þá á hann tvo A-landsleiki fyrir Íslands hönd og 24 unglingalandsleiki.

"Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Felix Örn Friðriksson hefur framlengt samning sinn við ÍBV út tímabilið 2024. Felix er, þrátt fyrir ungan aldur, með mikla reynslu og okkur mikilvægur leikmaður. Þá má einnig nefna að Felix er mjög öflugur félagsmaður og ÍBV-ari," segir í tilkynningu félagsins.


ÍBV situr í neðsta sæti Bestu deildarinnar með fjögur stig að loknum tíu umferðum.

Heimild: ÍBV Sport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.