Fotbolti.net
25.07.13 - 19:35
Hafliði Breiðfjörð

Þórir Guðjónsson í Fjölni frá Val (Staðfest)

Þórir við undirskriftina.

Þórir við undirskriftina.

Canon

Mynd: Fjölnir

Þórir Guðjónsson er genginn til liðs við 1. deildarlið Fjölnis frá Val og samdi við Grafarvogsfélagið út árið 2015 í dag.
Þórir sem er 22 ára gamall er uppalinn hjá Fram en hóf meistaraflokksferil sinn með Val árið 2010.

Hann var búinn að spila fimm leiki með Val í Pepsi-deildinni í sumar og skora í þeim eitt mark. Hann var síðast í byrjunarliðinu gegn Víkingi Ólafsvík fyrir tíu dögum síðan.

Þórir spilaði með Fjölni sumarið 2012 á láni frá Val og árið þar á undan með Leikni á láni. Hann á að baki 53 meistaraflokksleiki og skorað í þeim sex mörk.

Fjölnir er í 5. sæti 1. deildar með 21 stig, en aðeins fjórum stigum frá toppnum þegar tólf umferðir eru búnar.

Liðið mætir KA á laugardaginn.
Þórir ásamt Guðmundi Böðvari og Viðari Ara nýjum liðsfélögum sínum.

Þórir ásamt Guðmundi Böðvari og Viðari Ara nýjum liðsfélögum sínum.

Canon

Mynd: Fjölnir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.