Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. júlí 2021 16:52
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Höttur/Huginn með enn einn sigurinn
Höttur/Huginn er búið að vinna tíu leiki í 3. deildinni
Höttur/Huginn er búið að vinna tíu leiki í 3. deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Höttur/Huginn 4 - 1 KFS
1-0 Kristófer Einarsson ('22)
2-0 Pablo Carrascosa Garcia ('81)
3-0 Valdimar Brimir Hilmarsson ('83)
4-0 Kristján Jakob Ásgrímsson ('84)
4-1 Frans Sigurðsson ('87)

Höttur/Huginn vann tíunda leik sinn á tímabilinu er liðið sigraði KFS 4-1 á Vilhjálmsvelli í 3. deildinni í dag.

Kristófer Einarsson, Pablo Carrascosa, Valdimar Brimir Hilmarsson og Kristján Jakob Ásgrímsson gerðu mörk heimamanna í leiknum.

Kristján Jakob og Valdimar Brimir skoruðu fyrstu mörk sín fyrir félagið í leiknum.

Höttur/Huginn er á toppnum í 3. deildinni og vann þriðja leik sinn í röð en liðið er með 32 stig, sjö stigum á undan KFG sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner