Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. júlí 2021 17:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Karólína Lea með stórleik fyrir Bayern
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fer vel af stað á undirbúningstímabilinu með Bayern München.

Þýska stórveldið vann 9-0 sigur gegn Grasshopper frá Sviss í æfingaleik í gær.

Karólína Lea, sem er 19 ára gömul, átti sannkallaðan stórleik fyrir Bayern. Hún lagði upp annað mark Bayern í leiknum og skoraði svo þriðja markið sjálf.

Karólína bætti svo við öðru marki sínu úr vítaspyrnu á 83. mínútu. Það var níunda mark Bayern í leiknum.

Lokatölur 9-0. Karólína er á leið í sitt annað tímabil með Bayern, sem varð þýskur meistari á síðustu leiktíð og komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Glódís Perla Viggósdóttir er komin til Bayern en hún spilaði ekki í gær.
Athugasemdir
banner
banner