25.08.13 - 10:44
Elvar Geir Magnússon
Willian til Chelsea (Staðfest) - Fær atvinnuleyfi í vikunni

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur staðfest að samkomulag sé í höfn varðandi kaupin á Willian frá Anzhi Makhackala. Leikmaðurinn hefur sótt um atvinnuleyfi og mun væntanlega fá það á miðvikudag.
Þessi 25 ára Brasilíumaður fór í læknisskoðun hjá Tottenham í síðustu viku og var nálægt því að ganga í raðir félagsins.
En síðasta fimmtudag blandaði Chelsea sér í leikinn og náði samkomulagi við leikmanninn á innan við 24 klukkustundum.
Talið er að Chelsea hafi samþykkt að borga 30 milljónir punda fyrir leikmanninn. Tækifærið að spila í Meistaradeildinni hefði verið of gott til að því væri hægt að hafna.
Samkvæmt BBC hefur Chelsea sent fyrirspurn um Willian í hverjum einasta félagaskiptaglugga síðan 2011. Hann er þriðja stóra nafnið sem gengur í raðir Chelsea í sumar en hinir eru þýski framherjinn Andre Schurrle og hollenski miðjumaðurinn Marco van Ginkel.
Á Stamford Bridge er ótrúlegt úrval af sóknarsinnuðum miðvallarleikmönnum. Þar eru Eden Hazard, Oscar, Kevin De Bruyne, Schurrle og Juan Mata og nú bætist Willian við.