Fotbolti.net
25.08.14 - 16:02
Magnús Már Einarsson

Mario Balotelli til Liverpool (Staðfest)

Mynd sem Balotelli birti á Instagram nú rétt í þessu.

Mynd sem Balotelli birti á Instagram nú rétt í þessu.

Canon

Mynd: Instagram

Liverpool hefur keypt framherjann Mario Balotelli frá AC Milan á 16 milljónir punda.
,,Ég er mjög ánægður. Við höfum rætt um að ég komi hingað og ég er ánægður með að það sé í höfn,\" sagði Balotelli.

,,Liverpool er eitt af bestu liðunum hér á Englandi og fótboltinn er mjög góður hér. Þetta er frábært lið með unga leikmenn. Þess vegna kom ég hingað.\"

Balotelli er 24 ára gamall en hann hefur leikið undanfarið eitt og hálft ár með AC Milan eftir að hafa áður verið á mála hjá Manchester City.

Balotelli er ekki kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Manchester City í kvöld en hann mun væntanlega horfa á leikinn úr stúkunni á Etihad leikvanginum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.