Fotbolti.net
25.08.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Fyrsti leikur AC Milan sýndur beint

Ítalía í dag - Fyrsti leikur AC Milan sýndur beint
Canon

Mynd: Getty Images

Udinese tekur á móti AC Milan í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum og verður hann sýndur beint á <i>Stöð 2 Sport 2</i>.
Nokkrir nýir leikmenn gætu komið við sögu í liði Milan í leiknum, þar á meðal Rafael Leao sem var keyptur fyrir 32 milljónir punda í sumar.

Milan stal Marco Giampaolo þjálfara af Sampdoria og hefur stjórn félagsins mikla trú á að hann sé rétti maðurinn til að gera félagið samkeppnishæft á nýjan leik.

Sampdoria er búið að eiga slæmt sumar á leikmannamarkaðinum vegna pressu fjárfestahóps, með Gianluca Vialli í fararbroddi, sem vill kaupa félagið af Massimo Ferrero.

Lazio er ekki búið að skipta mikið um leikmenn og stefnir á Evrópubaráttu í ár. Samp var lengst af í baráttunni á síðustu leiktíð en endaði að lokum í 9. sæti, sex stigum eftir Lazio.

Roma mætir þá Genoa, SPAL tekur á móti spútnik liði síðasta tímabils Atalanta og Torino fær Sassuolo í heimsókn.

Bologna og Cagliari áttu gott sumar og munu freista þess að komast úr fallbaráttunni og reyna að enda í efri hluta deildarinnar. Bologna heimsækir nýliða Verona á meðan Cagliari fær Mario Balotelli og félaga í heimsókn frá Brescia.

Leikir kvöldsins:
16:00 Udinese - AC Milan (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Sampdoria - Lazio (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Roma - Genoa
18:45 SPAL - Atalanta
18:45 Cagliari - Brescia
18.45 Torino - Sassuolo
18:45 Verona - Bologna
Ítalía í dag - Fyrsti leikur AC Milan sýndur beint
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Roma11+2127
3Inter10+1325
4Como10+1023
5Milan11+922
6Frosinone11+920
7Juventus10+317
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Genoa11-414
13Atalanta11-412
14Lecce11-1010
15Monza11-78
16Fiorentina10-88
17Parma11-88
18Sassuolo11-138
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.