Fotbolti.net
25.08.19 - 10:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Slaven Bilic mótmælti og fékk rautt þegar WBA fékk ekki hornspyrnu

Slaven Bilic mótmælti og fékk rautt þegar WBA fékk ekki hornspyrnu
Canon

Mynd: Getty Images

Derby tók á móti WBA í gær í ensku Championship deildinni. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli og komu bæði mörkin af vítapunktinum. Martyn Waghorn kom Derby snemma yfir en Kenneth Zohore bjargaði stigi fyrir WBA.
Það má segja að Zohore hafi haldið haus á vítapunktinum en Slaven Bilic hélt alls ekki haus þegar WBA fékk ekki hornspyrnu.

Á 88. mínútu átti Jake Livermore skot úr teignum sem Bilic sá fara í varnarmann og þaðan afturfyrir. Dómari leiksins sá ekki snertinguna frá varnarmanni og mótmælti Bilic þangað til hann fékk sitt annað gula spjald og var þannig rekinn af varamannabekknum.

Fyrra gula spjaldið fékk hann á 42. mínútu þegar Derby fékk vítaspyrnu. Martyn Waghorn brást bogalistin í þeirra vítaspyrnu. Sam Johnstone varði frá honum.

WBA hefur unnið tvo leiki og gert þrjú jafntefli í fyrstu fimm umferðunum. Derby er með sex stig í 16. sæti.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+823
2West Ham11+1822
3Middlesbrough11+622
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Southampton11+1117
8Wolves10+317
9QPR11+317
10Blackburn11+115
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Portsmouth10014
14Wrexham11-114
15Bolton11-314
16Bristol City11-314
17Charlton Athletic11-514
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-49
22Burnley11-58
23Derby County11-116
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.